Frisbee Golf
Frisbee golf (einnig þekkt sem folf eða disc golf) er íþrótt sem, eins og nafnið gefur til kynna, er ekki ósvipuð venjulegu golfi. Í stað golfkylfa og golfbolta nota spilarar þó frisbeediska og keppast við að koma þeim frá teignum að holunni í sem fæstum köstum. Holan í frisbee golfi er þó ekki eiginleg hola, heldur er notast við þess til gerða körfu til þess að taka á móti diskunum. Diskarnir, líkt og kylfurnar í venjulegu golfi, eru af ýmsum toga og ráða ýmsir þættir því hvaða diska frisbeegolfarar kjósa að nota hverju sinni.
Vorið 2008 tókum við inn okkar fyrstu sendingu af frisbee golfdiskum frá Discraft í Bandaríkjunum, en fyrirtækið er leiðandi í þróun og framleiðslu fyrsta flokks frisbee golfdiska. Við bjóðum nú upp á vörur þeirra á afar sanngjörnu verði. Aerobie framleiðir einnig golfdiska sem panta má hér á svifdiskar.is.
Hér á Íslandi eru starfræktir 3 frisbee golfvellir: Í Gufunesi við Grafarvog, við útlífsmiðstöð skáta á Úlfljótsvatni og ofan við tjaldsvæðið að Hömrum á Akureyri.



