Algengar Spurningar
Hvernig kaupi ég vörur á svifdiskur.is?
- Eftir að þú hefur sett þær vörur sem þú hyggst kaupa í innkaupakörfuna smellirðu á "Ganga Frá Pöntun" hnappinn uppi í hægra horni síðunnar. Þá fyllirðu inn þær upplýsingar sem við þurfum til þess að geta sent þér pöntunina í pósti. Eftir að þú hefur staðfest að allar upplýsingar séu réttar er þinn þáttur búinn og við hefjumst um leið handa við að koma pöntuninni þinni á áfangastað.
Hvernig borga ég?
- Með Visa eða MasterCard greiðslukortum, í gegnum greiðsluþjónustuna korta.is.
Hversu hátt er póstburðargjaldið?
- Sendingarkostnaðurinn er ISK 575.- á hverja einstaka pöntun.
Hvenær má ég reikna með diskunum sem ég pantaði?
- Við ábyrgjumst að allar pantanir sem koma inn fyrir hádegi á virkum degi verði sendar af stað samdægurs. Það ættu því aldrei að líða meira en 2 virkir dagar frá því að pöntunin er lögð inn þar til diskarnir eru komnir í hendur viðskiptavinarins.
Ertu með fleiri spurningar? Sendu okkur tölvupóst!



