Ultimate Frisbee
Ultimate frisbee (eða bara 'ultimate') er hópíþrótt sem spiluð er á stórum leikvelli (sjá mynd). Tvö lið eigast við og eru 7 leikmenn í hvoru liði. Í ultimate er notast við svifdisk (frisbee) sem kastað er manna á milli. Markmið leiksins er að skora mark og er það gert með því að kasta svifdisknum til liðsfélaga sem staddur er á svo kölluðu endasvæði (ekki ólíkt amerískum fótbolta). Leikmönnum er frjálst að hlaupa óhindrað um völlinn til þess að geta tekið á móti svifdisknum frá samherjum sínum. Þetta á þó ekki við þegar leikmaður heldur á svifdisknum sjálfum, en þá ber honum að standa þar sem hann greip diskinn. Ultimate er hröð íþrótt og byggir mjög á samvinnu og útsjónarsemi leikmanna.

Í upphafi leiks (og eftir að mark hefur verið skorað) byrja bæði lið fyrir aftan marklínu síns eigin endasvæðis. Liðið sem skoraði hendir disknum út á leikvöllinn í átt að hinu liðinu. Hitt liðið hefur svo leikinn þar sem diskurinn lenti og verður þar með að sóknarliðinu. Með því að senda diskinn sín á milli reynir sóknarliðið stöðugt að færa sig nær endasvæði andstæðingsins þar til færi gefst til að skora. Ef sóknarliðinu mistekst að grípa diskinn (eða grípur hann utan vallar) fær varnarliðið umráð yfir disknum og verður að sóknarliðinu. Það sama á við þegar varnarliðið grípur diskinn eða slær honum í jörðina. Sem fyrr segir telst það mark þegar leikmaður sóknarliðsins grípur diskinn innan endasvæðis varnarliðsins. Einungis þegar skorað er mega liðin tvö skipta út leikmönnum, og er það gert eftir þörfum. Engin takmörk eru fyrir því hversu mörgum leikmönnum skipta má út í einu. Það lið sem fyrst nær 19 mörkum sigrar, hafi það tveggja marka forskot á hitt liðið. Annars vinnur það lið sem fyrst nær upp í 21. Þegar annað hvort liðið nær 10 mörkum er haldinn 10 mínútna hálfleikur.
Sá leikmaður sem heldur á disknum hverju sinni hefur 10 sek. til þess að kasta honum til samherja síns. Er honum leyfilegt að henda disknum í hvaða átt sem er. Leikmenn varnarliðsins sjá sjálfir til þess að leikmenn sóknarliðsins haldi ekki á disknum í meira en 10 sek. í einu. Telur þá einn leikmanna varnarliðsins (vanalega sá sem dekkar leikmanninn með diskinn) upp á 10, og hafi sóknarmaðurinn ekki losað sig við diskinn að þeim tíma loknum fellur diskurinn varnarliðinu í hendur, og verður það þar með að sóknarliðinu.
Í ultimate er enginn dómari og því skiptir miklu máli að leikmenn spili íþróttamannslega. Í íþróttinni er snerting milli liða óleyfileg. Sé brotið á leikmanni skal sá leikmaður kalla “villa”. Við það stöðvast leikurinn og ber þá leikmönnum að standa í stað. Er það þá undir leikmaðnninum sem brotið var á komið að hefja leikinn á ný. Ef upp koma deilur milli liða um það hver eigi rétt á disknum skal sá leikmaður sem síðast hélt á disknum byrja með hann.
Bandaríska fyrirtækið Discraft framleiðir hina stöðluðu ultimate diska. Sá diskur sem samþykktur er af "Ultimate Players Association" kallast Ultra-Star 175, en Discraft framleiðir einnig barna- og unglinga útgáfu af disknum (J*Star 145). Báðir diskarnir eru til sölu hér á svifdiskar.is.



