Kornspýrusafi (Rejuvelac)

Einföld leið til að verða sér út um góða meltingar-gerla með litlum tilkostnaði en smá fyrirhyggju!

Gæta skal fyllsta hreinlætis og nota eingöngu gler ílát, ekki plast.

  1. Botnfylli af heilu korni (Heilhveiti korn, Rúghveiti korn eða annað heillt stórt korn)
  2. Hella yfir það vatni og láta standa í 7 til 10 klukkutíma. Setja bleyju pjöttlu eða annað grófriðað efni yfir krukkutoppinn og teygju til að halda klúttnum á sínum stað.
  3. Athugið að ekki þarf að losa um klútinn heldur er spýrunin öll unnin í gegn um þennan klút.
  4. Eftir 7 – 10 tímana er vatninu hellt af og krukkan látin í stöðu þar sem hún er í 45° til 60° þar sem opið snýr niður.
  5. Nú er kornið skolað 2 – 3 sinnum á sólarhring (óþarft er að taka klútinn af) þar til spýrurnar eru orðnar 3 – 5 sinnu stærri en kornið sjálft.
  6. Þá er krukkan fyllt af vatni og komið fyrir í stofu hita þar sem hún stendur í 2 – 5 daga eftir því hve sterktur mjöðurinn á að vera. Mjög fljótlega verður vatnið skýjað á litinn og þýðir það að gerjun er komin í gang. Á 2. til 3. degi má finna væga súra lykt sem er gott.
  7. Mjög mikilvægt er að fleyta daglega ofan af vökvanum froðu og korni sem gæti hafa flotið upp. Ef þetta er ekki gert myndast mygla.
  8. Þegar æskilegum styrk er náð skal hella kornspýrusafanum að 4/5 hlutum í glerílát og setja í kæliskáp. Þar sem þetta er lifandi drykkur má ekki nota lok á ílátið í kælinum, notið klút og teygju.
  9. Nú má hella stofuheitu vatni aftur í ílátið, setja klútinn yfir og láta standa í stofuhita í 1 – 2 daga í viðbót og ná þannig meiri safa af spýrunum. Hella síðan aftur af og setja í kælinn. Þetta má reyna í 3. skiptið en það gengur ekki alltaf.

Kornspýrusafinn svipar til mysu en er ekki eins súr. Hann er af mörgum talinn hollari.
Í upphafi fannst mér hann lítt spennandi en á 3 – 4 glasi var skoðun mín breytt.

Verði ykkur að góðu,
Ólafur Einarsson

Allt Hitt ehf. Reykjavíkurvegi 22, 220 Hafnarfirði Opið 10:00 til 18:00 virka daga S.565-9977 allthitt@allthitt.is
AlltHitt.is

HEILSA

ÓSON MEÐFERÐ

TÍÐNI MEÐFERÐ

LifeWave MEÐFERÐ