Við hjónin Björg Marteinsdóttir og Ólafur Einarsson höldum úti þessu vefsvæði. Brennandi áhugi okkar hjóna á heilsu er til kominn vegna lækningar í fjölskyldu okkar þar sem Ósoni var beitt. Lesa má nánar um meðferðina og árangurinn sem Björg hlaut eftir 9 ára baráttu við Gigtina, á síðunni: "Óson meðferð" undir www.allthitt.is aðalsíðunni.
Þyt-Leikföngin og annað sem komið er og mun koma á www.allthitt.is eru hluti af áhugamálum okkar og löngun til að gleðja líf annarra.
Hver erum við.
Fyrir utan áhuga okkar á öllu heilsutengdu þá liggur hann einnig í golfi, ljósmyndun, handavinnu, bókalestri, minningabókagerð (scrap booking), ferðalögum, sundi, fótbolta, Aerobie (frisbee), og í raun allri útiveru. Líklega má þó segja að kirkjustarfið sem öll fjölskyldan tekur virkan þátt í taki mest af okkar tíma, en það gefur okkur líka mest.
Öll fjölskyldan tilheyrir Kirkju Jesú Krists hSdh. og þar verjum við miklu af okkar tíma við fjölskyldusögu og ættfræði og ýmis félagsstörf ásamt kirkjusamkomum á sunnudögum.
Skírt er tekið fram að upplýsingar á heimasíðum okkar, eru okkar áhugamál í heilsumálum og hafa ekkert með kenningar Kirkju Jesú Krists hSdh að gera
Allt Hitt ehf. Kt. 700407-0550, Vsk. 94184, Sævangur 37, 220 Hafnarfjörður S. 565-9977 Gsm. 821-5970 allthitt@allthitt.is
Fyrirtækið er skráð hjá hlutafélagaskrá